Síðasti viðburður SVEF á þessu ári verður haldinn í Sykursal Grósku mánudagsmorguninn 19.desember kl 8:30. Skráning á viðburðinn hér
Að þessu sinni fáum við Eirík frá Aranja og Gumma frá Júní til að fara yfir strauma og stefnur í stafrænni hönnun og tækninýjungum næsta árs.
Rukkað verður á þennan viðburð. Verð fyrir meðlimi SVEF er 2.900 kr. og 4.900 kr fyrir aðra. Smelltu hér til að skrá þig í félagið.
Viðburðurinn er opinn öllum og munum við bjóða upp á létta morgun hressingu. Hlökkum til að sjá ykkur!