Opið fyrir tillögur í dómnefnd og fyrir innsendingar á verkefnum
Íslensku vefverðlaunin verða haldin föstudaginn 22. febrúar 2019 við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica.
Tekið verður á móti innsendingum fyrir árið 2018 til og með 11. janúar 2019.
Forsöluverð gilda til og með 21. desember 2018. Sá afsláttur á ekki við þegar send eru inn verkefni í flokkana Gæluverkefni og Samfélagsvefir. Hér er hægt er að lesa nánar um flokkana.
Flokkaval 2018:
- Fyrirtækjavefur ársins lítil fyrirtæki <10
- Fyrirtækjavefur ársins meðalstór fyrirtæki 11-80
- Fyrirtækjavefur ársins stór fyrirtæki 81+
- Markaðsvefur ársins
- Vefverslun ársins
- Efnis- og fréttaveita ársins
- Opinber vefur ársins
- Vefkerfi ársins
- App ársins
- Samfélagsvefur ársins
- Gæluverkefni ársins