fbpx

Aðalfundur SVEF 2023

Aðalfundur Samtaka Vefiðnaðarins verður haldinn miðvikudaginn 31. maí kl. 17 á Brass Kitchen & Bar, 101 Reykjavík. Að þessu sinni verður kosið um þrjú stjórnarsæti, auk formanns. Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnarsetu eru hvattir til að gefa kost á sér með því að senda tölvupóst á [email protected]. Framboð þarf að berast eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund.

Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Kosning skoðurnarmanna reikninga
5. Lagabreytingar
6. Kosning stjórnar
7. Önnur mál

– Lög félagsins: https://github.com/svef/Laws
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér lög félagsins sem eiga sér nú varanlegan samastað á GitHub, en það mun gefa stjórn jafnt sem félagsmönnum betri yfirsýn yfir þróun laganna og breytingasögu þeirra með tilheyrandi rökstuðningi, sem og auka gagnsæi.

Allir þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld hafa atkvæðisrétt í þeim málefnum sem lögð verða fyrir á aðalfundi, þ.m.t. kosningar til stjórnarsetu, lagabreytingar og önnur mál sem kjósa þarf um.