Tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2007

Samtök vefiðnaðarins hafa opnað fyrir tilnefningar til Vefverðlaunanna 2007 sem fara munu fram í byrjun febrúar 2008. Vinsamlega notið formið hér fyrir neðan til að tilnefna vefsíðu til vefverðlaunanna 2007. Hægt er að tilnefna vefsíðu í einum flokki eða fleirum.

Gjaldskrá tilnefninga:

  • Tilnefning í einum flokki 7.500 krónur
  • Tilnefning í tveimur flokkum eða fleiri 12.500 krónur
  • Tilnefning einstaklingsvefja 1.200 krónur


Lokað verður fyrir tilnefningar þann 18. janúar 2008. Greiðslur vegna tilnefninganna þurfa að hafa borist fyrir 19. janúar þegar dómnefnd hefur störf. Vinsamlega millifærið gjaldið á reikningsnúmer SVEF 515-26-1441 og kennitölu 6504061170. Ef greiðsla berst ekki í tæka tíð verður vefurinn ekki metinn til verðlauna.

Athugið! Þeir sem óska eftir að greiða með öðrum hætti en millifærslu eru beðnir um að hafa samband við stjórn SVEF með því að senda tölvupóst á svef(hjá)svef.is.

Tilnefningar yfir fimm bestu vefina í hverjum flokki verða gerðar opinberar þann 26. janúar.

Staður og stund verðlaunaafhendingarinnar verður auglýst betur þegar nær dregur.

 

Lokað var fyrir tilnefningar til vefverðlaunanna 2007 - 18. janúar sl.  



Quick Navigation




Breyta leturstærð

Slider