Vefakademían - Dómnefnd Íslensku vefverðlaunanna

Vefakademían er á hverju ári skipuð einstaklingum með sérþekkingu og brennandi áhuga á vefmálum sem taka að sér að velja þá vefi sem hljóta íslensku vefverðlaunin. Dómnefndina skipa 7-8 aðilar sem starfa innan vefiðnaðarins.

Tilnefningar til dómnefndar

Ef þið hafið sérfræðiþekkingu og brennandi áhuga á vefmálum eða vitið af slíkum einstaklingum þá hvetjum við ykkur til að senda inn tilnefningar í dómnefnd. Ekki er skilyrði að viðkomandi sé meðlimur í SVEF.

Tekið verður á móti tilnefningum í dómnefndina til 12. janúar 2013 og dómnefndin svo skipuð þann 15. janúar 2013.

Breiður hópur sérfræðinga

Leitast er við að hafa hópinn sem breiðastan þannig að reynsla og þekking á ólíkum sviðum sé sem mest. Litið er sérstaklega til þekkingar á viðmóti, vefhönnun, markaðssetningu á netinu, forritun, vefumsjón, vefstjórnun, og þar fram eftir götunum

Hlutleysi dómnefndar

Það eru strangar reglur sem fylgja störfum dómnefndar. Ef aðili í dómnefnd er tengdur vef þá má sá hinn sami ekki taka þátt í umræðu um sinn vef og situr hjá á meðan aðrir fara í ítarlega í saumana og velta upp kostum og göllum.

SVEF á FacebookÁhugaverð umræða í Facebook hópnum


SVEF á Twitter Greinar og annað góðgæti á Twitter


SVEF á Vimeo Upptökur frá bjórkvöldum og Iceweb