Vel heppnuð Iceweb 2008

17.11.2008 15:48

Iceweb 2008 er nú að baki og vill stjórn SVEF þakka félagsmönnum og fyrirlesurum fyrir vel heppnaða ráðstefnu. Okkur hafa borist allnokkrir tölvupóstar frá fyrirlesurum og ráðstefnugestum og hafa þeir allir með tölu verið jákvæðir. Fyrirlesararnir hafa verið að senda okkur glærurnar sínar og munum við setja þær og upptökur af fyrirlestrunum inn á félagavefinn um leið og mögulegt er.