SVEF er stollt að kynna að Iceweb 2008, alþjóðleg ráðstefna um vefmál, hefst í dag. Ráðstefnan fer fram á 20. hæðinni í Turninum á Smáratorgi, Kópavogi. Innritun á ráðstefnuna hefst kl. 8:45 og formleg dagskrá hefst kl. 9:15. Hátt í 130 einstaklingar eru nú þegar skráðir til ráðstefnunnar og ljóst að um er að ræða einn af hápunktunum í íslenskum vefiðnaði.
Alþjóðlegt ofurteymi fyrirlesara
Iceweb ráðstefnan skartar alþjóðlegu ofurteymi fyrirlesara sem fjallaum allt frá markaðssetningu á vefnum til nýsköpunar, hagræðingar ogtæknilegrar útfærslu á veflausnum.Við val á fyrirlesurum var leitað til þekktra sérfræðinga á hverjusviði, en dagskrá ráðstefnunnar skipulögð þannig að fyrirlestrarnirveiti leikmönnum nauðsynlega innsýn og lærðum dýpri þekkingu.
Einn af hápunktum í íslenskum vefiðnaði
Stjórn SVEF skipulagði Iceweb 2008 með það að markmiði að efnistökin hæfðu þeim verkefnum sem íslensk fyrirtæki starfa helst að. Á tímum þegar ber mikið á aðhaldi í rekstri fyrirtækja er alþjóðleg ráðstefna sem þessi gríðarlega mikilvægur, en um leið hagkvæmur, kostur í símenntun. Hátt í 130 einstaklingar eru nú þegar skráðir til ráðstefnunnar ogljóst að um er að ræða einn af hápunktunum í íslenskum vefiðnaði.
Þema ráðstefnunnar
Yfirskrift ráðstefnunnar er „Breytingar“ (Change) sem vísar til þess að vefurinn er bæði í stöðugri mótun og umbreytingum, en einnig til þess að starf fólks í vefiðnaðinum tekur jafn örum breytingum. Vefiðnaðurinn er óumdeilt einna best í stakk búinn til að bregðast við breytingum í viðskiptaumhverfi heimsins. Skynsamlegar fjárfestingar á vef eru sífellt mikilvægari þáttur í straumlínulögun og sparnaði fyrirtækja, þjónustu við viðskiptavini og tryggð þeirra við fyrirtækið. Vel hugsuð og framkvæmd vefstefna spilar einnig lykilhlutverk í vexti og sókn, hvort heldur sem er stuðningur við aðrar einingar fyrirtækisins eða sem viðskiptavettvangur í sjálfum sér.





