Ný stjórn SVEF starfsárið 2008-2009 kjörin

09.10.2008 22:11

Aðalfundur Samtaka Vefiðnaðarins, SVEF, var haldinn fyrr í kvöld á veitingastaðnum Sólon í Baknastræti. Á fundinum var farið yfir starfsemi og reikninga félagsins starfsárið 2007-2008 og ný stjórn kjörin fyrir næsta starfsár.

Þórlaug Ágústsdóttir var endurkjörin formaður félagsins. Soffía Kristín Þórðardóttir, Einar Þór Gústafsson, Jóhanna Símonardóttir og Fjóla Jónsdóttir voru kjörin meðstjórnendur. Varamenn voru kjörnir Haukur Böðvarsson og Sigmundur Halldórsson.

Þórlaug Ágústsdóttir, formaður SVEF sagði að loknu kjöri að hún hlakkaðitil að starfa áfram fyrir félagið og að sjá það dafna á komandistarfsári.

Þá voru einnig samþykktar þrjár lagabreytingartillögur sem lagðar voru fram af fráfarandi stjórn og viðstöddum félagsmönnum. Ákveðið var að félagsgjöld fyrir komandi starfsár yrðu 4500 krónur.

Mjög gagnlegar umræður áttu sér svo stað að lokinni hefðbundinni dagskrá um Iceweb ráðstefnuna sem fyrirhugað er að halda 12-14. nóvember n.k. Það var einhugur í félagsmönnum um að tryggja að ráðstefnan fari fram á tilsettum tíma þrátt fyrir þá sviftivinda sem blásið hafa á landinu undanfari. 

 

Fundargerð aðalfundarins: 

  1. Fundurinn settur. Stungið upp á Huga Þórðarsyni sem fundarstjóra og sú tillga samþykkt með lófataki.
  2. Skýrsla stjórnar. Þórlaug Ágústsdóttir formaður SVEF flutti annál SVEF fyrir starfsárið 2007-2008 og fór yfir starf samtakanna og fráfarandi stjórnar.
    Formaður þakkaði félagsmönnum samstarfið og færði sérstakar þakkir til fráfarandi stjórnarmeðlima fyrir góð störf á árinu.
  3. Reikningar félagsins kynntir og lagðir til samþykktar. Formaður kynnti ársuppgjör SVEF fyrir liðið starfsár og lagði til samþykktar.
    Ársreikningar félagsins samþykktur einróma án athugasemda.
  4. Lagabreytingartillögur. Formaður SVEF kynnti lagabreytingartillögur fráfarandi stjórnar og lagði til samþykktar. Eftir umræður og tillögur frá félagsmönnum voru eftirfarandi lagabreytingar samþykktar.7. gr Út var fellt "Daglega umsjón félagsins annast formaður" og í staðinn samþykkt einróma:"Stjórn annast daglega umsjón félagsins og skiptir með sér verkum".

    Einnig var samþykkt tillaga frá Helgu Waage um að við 7.gr yrði bætt við málsgrein um að skipaðir yrðu endurskoðunarmennreikninga á aðalfundi. Eftir umræður var samþykkt að við 7.gr bætist málsgreinin: „Skipa skal skoðunarmann reikninga og varamann hans á aðalfundi félagsins. Skoðunarmenn skulu vera utan stjórnar."

    9. gr. Árgjald félagsins er ákvarðað á aðalfundi að tillögu stjórnar, það skal vera hóflegt og innheimt árlega.
  1. Kjör formanns og stjórnar. Auglýst eftir framboðum til setu í stjórn SVEF starfsárið 2008-2009.

    Til setu í stjórn SVEF bárust eftirfarandi framboð:
    Einar Þór Gústavsson
    Fjóla Jónsdóttir
    Haukur Már Böðvarssn
    Jóhanna Símonardóttir
    Soffía Þórðardóttir
    Sigmundur Halldórsson
    Þórlaug Ágústsdóttir sem jafnframt gaf kost á sér til formanns.

    Nýja stjórn SVEF skipa
    Þórlaug Ágústsdóttir, formaður
    Einar Þór Gústavsson
    Fjóla Jónsdóttir
    Jóhanna Símonardóttir
    Soffía Þórðardóttir
    Sigmundur Halldórsson, varamaður
    Haukur Már Böðvarssn, varamaður

  2. Félagavefur SVFE. Soffía Þórðardóttir kynnti félagavef SVEF og þær þjónustur sem í boði eru fyrir félagsmenn. Hún reifaði einnig þau verkefni sem unnið er að fyrir vef félagsins.
  3. Skoðunarmen reikninga. Skipaðir skoðunarmenn reikninga í samræmi við lagabreytingu samþykkta á fundinum. Hugi Þórðarson og Helga Waage buðu fram krafta sína og voru þau samþykkt sem skoðunarmenn reikninga fyrir næsta aðalfund.
  4. Félagsgjöld. Í samræmi við nýsamþykkta lagabreytingartillögu setti nýkjörin stjórn fram tillögu að árgjaldi SVEF fyrir komandi starfsár. Samþykkt var einróma og athugasemdalaust að árgjald næsta starfsárs yrði 4.500kr.
  5. Almennar umræður. Nýkjörinn formaður SVEF óskaði eftir umræðum félagsmanna um framkvæmd Iceweb ráðstefnunnar sem unnið hefur verið að undanfarna mánuði. Í ljósi mikilla breytinga í þjóðfélaginu þyrfti ný stjórn að taka ákvörðun um áframhald skipulagningarinnar en rétt væri að félagsmenn kæmu sínum skoðunum á framfæri.
    Margir tóku til máls en fundarmenn voru sammála um að halda ætti ráðstefnuna