Aðalfundur 9. okt á Sólon kl. 17:15

08.10.2008 11:18

Stjórn SVEF minnir á aðalfund samtakanna sem verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 9. október kl. 17:15. Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á aðalfundinn og þá sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til þátttöku í stjórn og starfshópum næsta árs. Kjörgengi og kosningarétt hafa allir félagsmenn SVEF sem greitt hafa árgjald núverandi starfsárs.

Hægt er að gerast félagi í SVEF á fundinum á morgun eða með því að leggja félagsgjald inn á bankareikning SVEF og senda stjórn staðfestingu í tölvupósti á stjorn@svef.is
515-26-1441 og kt. 6504061170