Stjórn SVEF hvetur þá sem hafa sérfræðiþekkingu og brennandi áhuga á vefmálum, eða vita af slíkum einstaklingum, til að senda inn tilnefningar í dómnefnd Vefverðlaunanna 2007.
Leitast verður við að hafa dómnefndina skipaða sem breiðustum hópi fagfólks þannig að reynsla og þekking á ólíkum sviðum sé sem mest. Litið verður sérstaklega til þekkingar á viðmótsmálum, vefhönnun, markaðssetningu á netinu, forritun, vefumsjón, vefstjórnun og þar fram eftir götunum.
Tekið verður á móti tilnefningum til 31. desember og stefnt er að því að velja dómnefndina fyrstu vikuna í janúar 2008.





