Miklar breytingar voru gerðar á stjórn SVEF í kjölfar aðalfundar í gær. Þökkum við stjórnarmönnum sem gáfu ekki kost á sér aftur fyrir vel unnin störf og bjóðum við nýja stjórnarmenn velkomna.
Einar (formaður), Sigmundur, Hjalti og Ægir sitja áfram í stjórn en Jóhanna, Soffía, Fjóla, Gauti og Hilmar gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Nýjir meðlimir í stjórn eru:
- Björn Ingimundarson, mobile forritari hjá Betware
- Eggert Gíslason, vefforitari hjá Libra Financial Solutions
- Hannes Agnarsson Johnson, samfélagsmiðla gúrú hjá TM Software
- Ragnheiður H. Magnúsdóttir, framkstj. Hugsmiðjunnar
Bjóðum við þau velkomin til starfa.
Formaður SVEF fór yfir árið sem er að líða en hægt kynningin er aðengileg fyrir þá sem vilja skoða hana nánar: Skýrsla stjórnar og reikningsskil
Það helsta sem kom fram:
- Leggja verður áherslu á að innheimta félagsgjöld
- Tap hefur verið á rekstri SVEF
- Gera þarf nýjan vef
- Hefja þarf undirbúning fyrir vefverðlaun og Iceweb





