Athyglisverðasti vefurinn - netkosning meðal SVEF-félaga

02.02.2011 12:04

Í ár verða veitt ný verðlaun fyrir Athyglisverðasta vefinn að mati félaga í SVEF. Kosning fer fram á netinu og fær hver félagsmaður eitt atkvæði en valið er úr tilnefndum vefjum. Tölvupóstur með upplýsingum hefur þegar verið sendur til félagsmanna.

Láttu ljós þitt skína og veldu þann vef sem þú telur vera athyglisverðastann og verðskulda þennan merka titil. Kosning verður opin fram á hádegi n.k. föstudags 4. febrúar.