Ert þú sammála að fundir séu eitraðir? Er ASAP hættulegt? Er betra að vaxa hægt heldur en hratt? Nú getur þú rætt þetta og deilt þínum skoðunum með öðrum sem hafa lesið Rework. Það er einfaldari, betri og snjallari leið til að reka fyrirtæki í dag.
Rework Meetup verður haldið á morgun 8. júní kl 20.00 á efri hæð Boston við Laugarveg 28b. Um er að ræða alþjóðlegan atburð sem mun eiga sér stað í yfir 260 borgum um allan heim.
Bókin Rework eftir Jason Fried og David H. Hanson hefure farið sigurför um heiminn. Höfundar eru stofnendur 37 Signals og mennirnar á bakvið Basecampog Ruby on Rails.
Ókeypis inn og öllum er frjálst að mæta hvort sem þeir hafa lesið bókina eða ekki.
Skráning á: http://www.meetup.com/Rework/3448/






