Minningarathöfn um Internet Explorer 6 verður haldin kl 20.00, fimmtudaginn 4. mars í Bertelstofu á Thorvaldsen.
Internet Explorer Sex, sem búið hefur á alnetinu undanfarin 8 ár, lést snemma dags 1. mars 2010 í Mountain View, Californiu. Orsök fráfallsins var slys á vinnustað í höfuðstöðvum Google.
Internet Explorer Sex, eða "IE6" eins og vinir og vandamenn kölluðu hann skilur eftir sig soninn Internet Explorer Sjö og barnabarnið Internet Explorer Átta.
Mætum og heiðrum minningu vafrans sem gerði okkur lífið leitt. Drekkum bjór, gleðjumst og grátum krókódílatárum.
Mælst er til þess að mætt sé í viðeigandi jarðarfararfatnaði.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Nánar á iceland.ie6funeral.com






