Föstudaginn 1. febrúar nk verða Íslensku vefverðlaunin 2007 veitt í áttunda sinn. Í tilefni af því standa Samtök vefiðnaðarins fyrir stuttri vefráðstefnu. Ráðstefnan hefst kl. 15 og stendur til kl. 17, en þá hefst eiginleg verðlaunaafhending. Ráðstefnan og verðlaunaafhendingin fara fram á Hótel Sögu.
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn SVEF, en aðgangseyrir er kr. 5.000 fyrir utanfélagsmenn. Athygli er þó vakin á því að hægt er að ganga í félagið á staðnum.
Skráning á ráðstefnu fer fram í gegnum svef@svef.is
Ráðstefnan fer fram í Harvard sal, Hótel Sögu.
Dagskrá
Skráning hefst kl. 14:30 en dagskráin hefst kl. 15:00.
Athygli - Margrét Dóra Ragnarsdóttir, viðmótssérfræðingur
Papernet: Internet on paper - Brian Suda, ráðgjafi hjá TM Software - Origo
Vefgreining er ekki nóg.... - Birgir Ólafsson, Account Executive hjá Omniture
Halldór Harðarson, forstöðumaður markaðsmála Icelandair
Einar Sævarsson, framkvæmdastjóri Midi.is
Fundarstjóri er Þórlaug Ágústsdóttir, formaður SVEF
Strax að ráðstefnunni lokinni – eða kl. 17:00 – er boðið til hanastéls í Sunnusal Hótel Sögu og Íslensku vefverðlaunin 2007 verða veitt.





