Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.
Dómnefnd skipuð fagfólki í vefmálum hefur nú valið þá vefi sem komast í úrslit til þessara eftirsóttu verðlauna.
Eftirfarandi vefir eru í úrslitum til Íslensku Vefverðlaunanna 2009:
Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með færri en 50 starfsmenn
Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn.
Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn
Besti afþreyingar- og fréttavefurinn
Besta blog/efnistök/myndefni
Besti hand-smátækja vefurinn
Besta markaðsherferðin
- Icelandair: Hvers vegna velur þú Icelandair
- Icelandair: Haustleikur
- Landsbankinn: Náman
- Keflavíkur flugvöllur: Paraleikur
- Flugfélag Íslands: Skemmtum okkur innanlands
Íslensku Vefverðlaunin verða afhent í níunda skipti þann 12. febrúar næstkomandi í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2, af Iðnaðarráðherra, Katrínu Júlíusdóttir.
Fyrr um daginn mun SVEF standa fyrir glæsilegri ráðstefnu um markaðsmál á Netinu frá A til Ö. Ráðstefnan fer fram á sama stað og hefst kl 13.00 og er aðgangur ókeypis fyrir félagsfólk í SVEF, en 2000 krónur fyrir þá sem ekki eru í SVEF.






