Tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2009.
Tilnefna vef eða markaðsherferð
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á þeim flokkum sem veitt eru verðlaun fyrir en flokkarnir 7 eru nú afmarkaðari og skýrari. Einnig líta nýjir flokkar dagsins ljós og nú er í fyrsta skipti veitt verðlaun fyrir markaðsherferð á netinu.
- Besti sölu- og kynningarvefurinn (yfir 50 starfsmenn)
- Besti sölu- og kynningarsvefurinn (undir 50 starfsmenn)
- Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn
- Besta markaðsherferðin á netinu
- Besti smá- eða handtækjavefurinn
- Besti afþreyingar- og/eða fréttavefurinn
- Besti blog/efnistök/myndefni
Dómnefnd veitir þar að auki þrenn auka verðlaun
- Frumlegasti vefurinn
- Besta útlit og viðmót
- Besti íslenski vefurinn
Tilnefningar til dómnefndar
Vefakademína er á hverju ári skipuð einstaklingum með sérþekkingu og brennandi áhuga á vefmálum.
Ef þið hafið sérfræðiþekkingu og brennandi áhuga á vefmálum eða vitið af slíkum einstaklingum þá hvetjum við ykkur til að senda inn tilnefningar í dómnefnd. Einnig má tilnefna aðra.
Leitast er við að hafa hópinn sem breiðastan þannig að reynsla og þekking á ólíkum sviðum sé sem mest. Litið er sérstaklega til þekkingar á viðmóti, vefhönnun, markaðssetningu á netinu, forritun, vefumsjón, vefstjórnun, og þar fram eftir götunum
Tekið verður á móti tilnefningum í dómnefndina til 22. janúar og dómnefndin svo skipuð þann 23. janúar 2010.





