Aðalfundur SVEF verður haldinn miðvikudaginn 2. desember nk. kl. 18.
Fundurinn er haldinn á veitingastaðnum Sólon v/Bankastræti, 2. hæð.
Aðalfundur SVEF verður haldinn miðvikudaginn 2. desember nk. kl. 18.
Fundurinn er haldinn á veitingastaðnum Sólon v/Bankastræti, 2. hæð.
Dagskrá fundar:
- Skýrsla stjórnar
- Reikningsskil
- Kosning formanns og stjórnar
- Önnur mál
SVEF býður alla þá er starfa að vefmálum velkomna á fundinn og hvetur áhugasama félaga til að bjóða fram krafta sína fyrir næsta starfsár. Bæði er leitað eftir fólki til stjórnarsetu en einnig til annarra verkefna.
Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. Samtökin hafa það að markmiði að miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni, vera samræðuvettvangur félagsmanna og andlit stéttarinnar út á við.
SVEF sér árlega um framkvæmd Íslensku vefverðlaunanna. Félagið stendur fyrir ráðstefnunni IceWeb, sem er metnaðarfull alþjóðleg ráðstefna um vefmál, auk fjölda smærri fyrirlestra, umræðufunda og fagnaða fyrir félagsmenn.
Nánari upplýsingar um Samtök vefiðnaðarins má finna á vef félagsins á www.svef.is en þar einnig tekið við skráningu nýrra félaga.
Kv. stjórn SVEF





