Bjórkvöld SVEF um Open Source CMS kerfi

Bjórkvöld SVEF um Open Source CMS kerfi

21.03.2009 14:35

SVEF kynnir næsta bjórkvöld. Taktu frá miðvikudagskvöldið n.k. - 25. mars frá kl. 20.30. Staðurinn að þessu sinni er veitingastaðurinn Balthazar í Hafnarstrætinu, efri hæð. Vekjum athygli á að SVEF félögum býðst sérstakt tilboð á drykkjum.

Nú ætlum við að skoða nokkur open source CMS kerfi, heyra í fólki semhefur notað þau og fjalla um kosti þeirra og galla. Viðhöfum fengið til liðs við okkur nokkra aðila semætla að segja okkur frá sinni reynslu af nokkrum kerfum, m.a. Drupal,Joomla og Wordpress svo eitthvað sé nefnt. Nánari dagskrá verðurauglýst eftirhelgina.

Eins langar okkur að heyra meira frá þeim ykkar sem hafið reynslu afeinhverjum open source CMS kerfum.  Endilega mætið á miðvikudagskvöldiðog segið frá ykkar reynslu eða hafið samband við okkur í netfangið svef@svef.is.