Hvernig má ná auknum árangri í rafrænni stjórnsýslu? Hvað má læra af öðrum OECD ríkjum? Þann 13. mars nk. kl. 8.00-ca. 10.00 verður haldið á Grand hótel í Reykjavík morgunverðarmálþing með einum af helstu sérfræðingum OECD í árangri ríkja og stofnana á sviði rafrænnar stjórnsýslu.
Hvernig má ná auknum árangri í rafrænni stjórnsýslu? Hvað má læra af öðrum OECD ríkjum?
Þann 13. mars nk. kl. 8.00-ca. 10.00 verður haldið á Grand hótel í Reykjavík morgunverðarmálþing með einum af helstu sérfræðingum OECD í árangri ríkja og stofnana á sviði rafrænnar stjórnsýslu, nýútskrifuðum doktor frá Háskóla Íslands á þessu sviði og þeim sem stýra innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu á Íslandi fh. forsætisráðuneytisins. Fundarstjóri er Haukur Ingibergsson formaður Félags forstöðumanna ríkisstofana.
Að málþinginu standa Félag forstöðumanna ríkisstofnana, forsætisráðuneyti, Stofnun stjórnsýslufræða v. Háskóla Íslands og Skýrslutæknifélag Íslands.
Þátttökugjald er kr. 4.900.- og er morgunverður innifalinn, verð f. háskólanema kr. 2.500.-. Skráning er á hlekknum: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/rafraenstjornsysla
Megintilgangur málþingsins er að fjalla um þætti sem ráða árangri ríkja og stofnana á þessu sviði:
Dagskrá:
8.30-9.10: Yih-Jeou Wang: E-Government development in OECD countries - lessons learned:
"After a short introduction on how Iceland compare in different international benchmarkings, Mr. Wang will focus on lessons learned from the last 10 years of e-government work at the OECD: a number of cross-cutting challenges will be described (e.g. leadership, organisation, collaboration and co-operation, and capacity for implementation) based on recent OECD studies and eight country studies of e-government. Using the international development trends as seen today, Mr. Wang will give his bid on how the e-government agenda might look like in 2020."
Yih-Jeou Wang stýrir verkefnum OECD er lúta að rafrænni stjórnsýslu (OECD E-Government Project ), árangri einstakra landa og samanburði milli landa á árangri, og áhrifum rafrænnar stjórnsýslu á stjórnun hins opinbera. Hann hefur fengist við þetta svið frá árinu 1995 fyrst í Danmörku og síðan hjá OECD.
9.15-9.35: Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur: Hvað skýrir slaka útkomu Íslands í rafrænni stjórnsýslu og hvaða leiðir eru líklegar til að bæta þar úr?
Haukur mun kynna meginniðurstöður sinnar rannsóknar og velta fyrir sér hvaða leiðir gætu skilað betri árangri í framtíðinni.
9.40-ca. kl. 10.00: Guðbjörg Sigurðardóttir skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti: Árangur í rafrænni stjórnsýslu - Breytt verklag byggt á reynslu.
Guðbjörg mun fjalla um úttektir sem gerðar hafa verið á Íslandi um rafræna stjórnsýslu, hvaða lærdóm opinberir aðilar hafa dregið af þeim og hvernig verklagi hefur verið breytt í kjölfar þeirra til að bæta árangur í rafrænni stjórnsýslu.






