SVEF og RIMC

SVEF og RIMC

02.03.2009 15:12

SVEF félögum býðst 30% afsláttur af verði RIMC ráðstefnunnar sem haldin er þann 20. mars nk.

SVEF félögum býðst 30% afsláttur af verði RIMC ráðstefnunnar sem haldin er þann 20. mars nk.

Hér fyrir neðan má sjá stuttan kynningartexta um ráðstefnuna. Nánari upplýsingar - Reykjavik Internet Marketing Conference 2009

Aldrei sem fyrr snúa fyrirtæki sér að Netinu sem samskipta- og markaðsmiðli og á meðan skorið er niður í hefðbundnum miðlum heldur Netið sínu striki. Bæði hérlendis og erlendis eru fyrirtæki að vakna enn frekar til Netsins bæði til markaðssetningar á heimasvæðum og á alþjóðlegum margtyngdum mörkuðum. Ofan á þetta bætist síðan hve mikilvægt Netið er sem samskiptamiðill, eins og hefur sýnt sig sl. mánuði í þeirri samskiptakrísu sem Ísland gekk í gegnum.

RIMC skartar nær 20 velvöldum fyrirlesurum á heimsmælikvarða frá fyrirtækjum eins og Google, NIKE, Microsoft, BBC, Augure, Yandex, NFL, Ericsson og IBM svo eitthvað sé nefnt.

Ráðstefnan er haldin á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 20. mars nk. og hefst klukkan 8:00 með skráningu og lýkur með kokkteilboði frá 16:30 til 18:00.

Ráðstefnan er t.d. ætluð markaðsfólki, hönnuðum og stjórnendum fyrirtækja sem vilja nýta Netið betur sem arkaðs- og samskiptamiðil og auka þannig þjónustu og sölu.


Aðgangsmiða má panta í gegnum Netið á rimc.is og greiða með gíróseðli eða greiðslukorti í gegnum síma. Nánari upplýsingar gefur Haraldur Friðgeirsson í síma 540 9504 - halli@nem.is

Kær kveðja,

Stjórn SVEF