Skráning er nú í fullum gangi á Veflausnir, ráðstefnu SVEF um vefmál sem verður haldin föstudaginn 30. janúar kl. 14 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Ráðstefnan er haldin í tengslum við Íslensku vefverðlaunin 2008 en verðlaunaathöfn mun fara fram að lokinni ráðstefnunni.

Samtök vefiðnaðarins standa fyrir ráðstefnu um vefmál þar sem úrval innlendra fyrirlesara munu halda erindi og sitja fyrir svörum. Ráðstefnan er haldin í tengslum við Íslensku vefverðalunin 2008 en verðlaunaathöfn mun fara fram að lokinni ráðstefnunni.
Ráðstefnan er haldin í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu og hefst kl. 14:00. Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn SVEF.
Skráning
Félagar í SVEF geta skráð sig á ráðstefnuna eftir innskráningu á Félagavefinn. Nýir félagar geta skráð sig á ráðstefnuna um leið og þeir skrá sig í félagið.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Uppskeruhátíð vefiðnaðarins
- ávarp frá Samtökum Vefiðnaðarins.
Markaðssetning í núverandi umhverfi
- Magnús Bergsson, Framkvæmdastjóri Sölusviðs EVE.Online, CCP.
Dótakassi vefstjórans
- Einar Gústafsson, vefstjóri Nýja Glitnis.
Open source í daglegum rekstri
- Frosti Sigurjónsson, Framkvæmdastjóri og stofnandi DoHop.
Kreppuspilið – frá hugmynd að veruleika
- Jónas Björgvin Antonsson framkvæmdastjóri Gogogic
Hugmyndaráðuneytið
- Guðjón Már Guðjónsson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri Industria
Upplýsingabyltingin: Sagan er ekki lengur skrifuð af sigurvegaranum
- Þórlaug Ágústsdóttir, stjórnmálafræðingur og formaður SVEF





