SVEF kynnir þá vefi sem dómnefnd Vefverðlaunanna 2008 hefur valið til úrslita í hverjum flokki. Vefverðlaunin 2008 verða veitt í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi þann 30. janúar næstkomandi og hefst dagskráin með hanastéli kl. 17:00. Fyrr um daginn standa Samtök vefiðnaðarins fyrir ráðstefnu um vefmál þar sem úrval innlendra fyrirlesara munu halda erindi og sitja fyrir svörum. Ráðstefnan hefst kl. 14:00 og er aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn SVEF.
SVEF kynnir þá vefi sem dómnefnd Vefverðlaunanna 2008 hefur valið til úrslita í hverjum flokki. Vefverðlaunin 2008 verða veitt í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi þann 30. janúar næstkomandi og hefst dagskráin með hanastéli kl. 17:00.
Fyrr um daginn standa Samtök vefiðnaðarins fyrir ráðstefnu um vefmál þar sem úrval innlendra fyrirlesara munu halda erindi og sitja fyrir svörum.
Ráðstefnan hefst kl. 14:00 og er aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn SVEF.
Skráning
Félagar í SVEF geta skráð sig á ráðstefnuna eftir innskráningu á Félagavefinn. Nýir félagar geta skráð sig á ráðstefnuna um leið og þeir skrá sig í félagið.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Uppskeruhátíð vefiðnaðarins
- ávarp frá Samtökum Vefiðnaðarins.
Markaðssetning í núverandi umhverfi
- Elísabet Grétarsdóttir, markaðsstjóri Eve Online (CCP).
Dótakassi vefstjórans
- Einar Gústafsson, vefstjóri Nýja Glitnis.
Open source í daglegum rekstri
- Frosti Sigurjónsson, Framkvæmdastjóri og stofnandi DoHop.
Kreppuspilið – frá hugmynd að veruleika
- Jónas Björgvin Antonsson framkvæmdastjóri Gogogic
Hugmyndaráðuneytið
- Guðjón Már Guðjónsson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri Industria
Upplýsingabyltingin: Sagan er ekki lengur skrifuð af sigurvegaranum
- Þórlaug Ágústsdóttir, stjórnmálafræðingur og formaður SVEF
Til úrslita Vefverðlaunanna 2008 keppa:
Besti sölu- og þjónustuvefurinn
- Borgarleikhús (www.borgarleikhus.is)
- Flugfélag Íslands (www.flugfelag.is)
- Icelandair.is (www.icelandair.is)
- Miði.is (www.midi.is)
- Síminn (www.siminn.is)
Besti fyrirtækjavefurinn
- Bláa lónið (www.bluelagoon.com)
- Ísafold Travel (www.isafoldtravel.is)
- Marel (www.marel.com)
- Pósturinn (www.postur.is)
- Síminn (www.siminn.is)
Besti vefur í almannaþjónustu
- Akraneskaupstaður (www.akranes.is)
- Fasteignaskrá Íslands (www.fasteignaskra.is)
- Ísland.is (www.island.is)
- Pósturinn (www.postur.is)
- Veðurstofa Íslands (www.vedur.is)
Besti afþreyingarvefurinn
- Kvikmyndir.is (www.kvikmyndir.is)
- Iceland Socks (www.myicelandsocks.com)
- Skjárinn (www.skjarinn.is)
- Tónlist.is (www.tonlist.is)
- Vísir (www.visir.is)
Besta útlit og viðmót
- Flugmálastjórn Íslands (www.caa.is)
- Icelandair (www.icelandair.is)
- Ísafold Travel (www.isafoldtravel.is)
- Pósturinn (www.postur.is)
- Síminn (www.siminn.is)
Besti einstaklingsvefurinn
- 24x24 (www.24x24.is)
- Brjóstakrabbamein (www.brjostakrabbamein.is)
- Cafe Sigrún (www.cafesigrun.com)
- Hjartalíf (www.hjartalif.is)
- Indefence (www.indefence.is)
Að auki verða veitt sérstök verðlaun fyrir besta íslenska vefinn 2008 og Bjartasta vonin 2008 úr hópi allra þeirra vefja sem keppa til úrslita.
SVEF
Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. Samtökin hafa það að markmiði að miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni, vera samræðuvettvangur félagsmanna og andlit stéttarinnar út á við.
SVEF sér árlega um framkvæmd Vefverðlaunanna, í samstarfi við ÍMARK, en vefverðlaunin voru fyrst haldin árið 2000. Félagið stendur árlega fyrir ráðstefnunni IceWeb, sem er metnaðarfull alþjóðleg ráðstefna um vefmál, auk fjölda smærri fyrirlestra, umræðufunda og fagnaða fyrir félagsmenn.
Kær kveðja,
Stjórn SVEF





