Samtök vefiðnaðarins hafa opnað fyrir tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2007 sem fara munu fram í byrjun febrúar 2008. Að þessu sinni verða veitt verðlaun í sex flokkum auk þess sem sérstök verðlaun verða veitt fyrir Besta íslenska vefinn 2007 og Bjartasta vonin 2007.
Veitt verða verðlaun fyrir besta sölu og þjónustuvefinn, besta fyrirtækjavefinn, besta vefinn í almannaþjónustu, besta afþreyingarvefinn, besta útlit og viðmót og besta einstaklingsvefinn. Hægt er að tilnefna vefsíðu í einum flokki eða fleirum. Dómnefndin mun einnig velja Besta íslenska vefinn 2007 og Bjartasta vonin 2007 en í þessa flokka er ekki hægt að tilnefna vefi.
Tekið verður við tilnefningum hér á heimasíðu SVEF til 18. janúar 2008 og þá mun dómnefndin taka við og þann 26. janúar verða fimm vefir útnefndir til verðlauna í hverjum flokki. Viku síðar hefst svo valið á sigurvegara hvers flokks. Sigurvegararnir verða tilkynntir á Vefverðlaununum 2007, sem mun fara fram í byrjun febrúar.





