Starfsárið 2007 - 2008

01.11.2007 04:14

Aðalfundur Samtaka Vefiðnaðarins SVEF var haldinn fimmtudaginn 13.sept síðastliðinn í höfuðstöðvum Glitnis og var hann vel sóttur. Á fundinum var farið yfir starfsemi og reikninga félagsins undanfarið starfsár og kjörin ný stjórn fyrir næsta starfsár.

Stjórn SVEF starfsárið 2007-2008:
 
Þórlaug Ágústsdóttir,  formaður. thorlaug(hjá)gmail.com
Haukur  M. Böðvarsson
Kjartan Sverrisson
Soffía K. Þórðardóttir
Vilborg Guðnadóttir
Jóhanna Símonardóttir, varamaður 
 
Fyrsti viðburður nýs starfsárs var haldinn fimmtudagskvöldið 4. Október kl. 20:30 á Thorvaldsen og var umræðuefnið "Push-pull" miðlun og voru Steingrímur  Árnason frá Apple á Íslandi,
Már Örlygsson frá Hugsmiðjunni og Árni Matthíasson frá Mbl.is framsögumenn þar sem þeir kynntu meðal annars podcast og notkun rss tækninnar í miðlun.
Félagsmenn SVEF fjölmenntu á fundinn, gerðu veitingum góð skil og tóku þátt í fjörugum umræðum um rss, hlaðvörp, framtíð miðlunarinnar, kosti og galla.